500.000 milljónir manna ?

Ehemm................gerir það ekki 500 milljarða ?

Vá hvað okkur fjölgar hratt.   :)


mbl.is Sæbjúgu gegn malaríu?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með verðin ?

Hlutfallslega mest notkun netsins á Íslandi..........ok.

Ekki er nú verð á tengingum að hjálpa til við það samt sem áður. Hér búum við við hæsta verð í heimi á nettengingum. Og ennþá þráast netfyrirtækin við að losa okkur við gjald fyrir niðurhal, jafnvel Hive sem auglýsti nú ekkert smá þvílíkt mannréttindabrot gjaldtaka fyrir niðurhal væri, rukkar fyrir það líka.

Hvernig væri nú Hive, and standa við stóru orðin og afnema gjaldtöku á niðurhali á öllum  áskriftarleiðum ?


Skrýtin fyrisögn

Allt gott og blessað hjá Hemma.

En er ekki fyrirsögnin um eitthvað allt annað en fréttin ? 


mbl.is „Wenger finnur alltaf unga og ferska stráka“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miklatúns tónleikar

Ágætis dagskrá á þessum tónleikum.

En ég get ekki orða bundist...............hvenær í andsk................fær Rás 2 og Reykjavíkurborg einhvern metnað til að hafa gott  sánd á svona tónleikum.   Sándið var alveg hræðilegt. Annað hvort eru græjurnar svona lélegar eða mixer mennirnir hafa ekki hugmynd um hvað þeir eru að gera.

Að öðru leiti fannst mér þetta hin ágætasta skemmtun. 


mbl.is Mannhaf á miðborgarsvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vikan 30/6 -7/7

Þessi vika var ansi ágæt fyrir nokkurra hluta sakir.

Laugardaginn 30/6

Binni steggjaður.

Byrjuðum á að ná í kauða í vinnuna upp í Mosó. Þaðan lá leiðin niður í Sundhöll Reykjavíkur þar sem kallinn fékk smá leiðsögn í köfun með kafara. Hrekktum hann aðeins með því að köfunarkennarinn var alveg á því að Binni ætti að kafa nakinn,  Binni þurfti nú aðeins að melta það, lögreglan hefði örugglega skorist í leikinn ef það hefði verið ofan á.

Köfunin tóks vel í alla staði, Binni hæst ánægður og rennblautur, og við svona rétt að byrja að bleyta okkur líka (að innan að sjálfsögðu) 

Eftir köfunina var kallinn keyrður upp í Laxnes þar sem hann var settur á bak. Ekki vissu nú allir að Binni er vanur hestamaður, unnið við tamningar og ég veit ekki hvað. Ég og Sveinn ákváðum að fara ekki á bak, Sveinn slappur í baki og svoleiðis.  Greinilegt var að Binni var engan veginn eini steggurinn þennan dag, ýmislegt skrautlegt í gangi hjá hópum sem komu á meðan Binni var á baki.

Nú eftir truntureið var drengurinn dreginn niður í Laugardal, fyrir ofan húsdýragarðinn, þar er þessi lika forláta 30-40m langa klifurgrind. Það var ekkert verið að tvínóna við neitt, drengurinn klæddur úr öllu nema nærum og skóm og bundið fyrir augun. Hann svo látinn ganga smá þrautagöngu. Það má svo sem bæta því við að að svo stöddu voru nú flestir komnir aðeins við skál.  Eitthvað klúður varð með myndbandsupptökuvélina, rafhlaðan búin og engin aukarafhlaða. En....ekki málið......nýjasta tækni í símatækni reddaði málinu, ég tók bara herlegheitin upp á myndasíman minn.

Næst lá leiðin niður á Zegafredo Lækjartorgi, þar var Binna réttur gítar og honum bent á að nú væri tækifærið að meika það í tónlistarbransanum komið, fullur bær af fólki til að auglýsa hæfileikana :)

Nú var farið að halla degi og tími fyrir menn að skipta um föt og sjæna sig til fyrir dýrindis máltíð á Fjalakettinum. Fínasta lambasteik með víni og öllu tilheyrandi. Nú svo er best að þegja bara um restina á kvöldinu (kannski maður segist bara ekkert muna, það er alltaf safe).

 Sunnudagurinn var flestum frekar erfiður, þrátt fyrir að um væri að ræða menn í besta formi :P

Frá mánudegi alveg til laugardags vorum við Sveinn og Elli að baxa við að klippa vídeóin saman og setja inn einhverja effekta, verð nú að segja að þar toppuðu Sveinn og Elli mig, enda er ég alrómaður klaufi þegar kemur að hverskonar tölvuvinnu, kallið mig bara leikstjóra, veit hvernig allt á að vera, veit bara ekkert hvernig á að fara að því :)

Laugardagur 7/7

Brúðkaup Döddu og Binna

Bæði athöfnin og veislan fór fram á sama stað, á Sveinsstöðum við Elliðavatn. Brúðhjónin stórglæsileg, hún í hnésíðum fallegum hvítum kjól, hann í Vegas stæl hvítum jakkafötum í fagurbleikri skyrtu, mega flott.

Maturinn æði, Ingó búinn að vera grilla heilt lamb á teini í nokkra klukkutíma fyrir veisluna, Elli og Boggi með sitthvora dýrindis súpuna og Helga fósturmóðir Döddu bakaði brauðið. Bara helv.........flott.

Ég veit ekki hvað er hægt svosem að segja um veisluna annað en að þetta var partý ársins, enda svo sem ekki við öðru að búast. Margrómað gleðifólk um allar sveitir. 

        
 


Hmm.......

Hvernig væri nú að setja eina litla klausu um að það að lagið verði líka að vera gott.

Það allaveganna virðist hafa vafist fyrir flestum lagahöfundum hin síðustu ár.

Hef sagt þetta áður, og á örugglega eftir að segja þetta aftur, en söngvakeppni sjónvarpsins er eins og stór vondulagakeppni, nokkurs konar árshátið lélegust laga- og textahöfunda  landsins.

 

En þetta er svo sem bara mín skoðun. 


mbl.is Reglum um Söngvakeppni sjónvarpsins breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafstuðbyssur

Vissulega fylgir öllum vopnum viss áhætta.

En menn verða að hafa það í huga að í flestum eiturlyfja "böstum" (ef mér leyfist að sletta smá) þá er lögreglan að leggja hald á fjölda skotvopna, afsagaðar haglabyssur, og svo í síauknum mæli fullkomnar hálfsjálvirkar og sjálfvirkar skammbyssur.

Hversu lengi eigum við að bíða eftir því að lögreglumaður verði skotinn til bana við skyldustörf.  Vissulega fer sérsveitin með í öll stærri dæmi, en ekki nærri því allar handtökur eru gerðar í fylgd sérsveitarinar.

Ég veit að lögreglumenn eru orðnir verulega uggandi yfir sínu vinnuöryggi. Auðvitað vita þeir að starfinu fylgir viss áhætta, og virðast þeir gera það af mikilli hugsjón ,vel flestir, allaveganna er kaupið ekki að draga inn fjölda fólks í þessi störf. En að eiga á hættu að vera skotinn til bana við störf sín er gjörsamlega óásættanleg staða.

Ég á nokkra vini í lögreglunni og þar af leiðandi er ég algerlega fylgjandi öllum leiðum sem gera þeirra störf öruggari fyrir þá og okkur hin.  


mbl.is Rafbyssur til reynslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elsta systkynið gáfaðast

Jamm...............og hvað er svona fréttnæmt við þetta ?

 

Hélt að þetta vissu bara allir :)

 

 


mbl.is Elsta systkinið gáfaðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðgerðalaun

Vissulega gott verk þarna.

Ég skora á hálauna menn á Íslandi að gera þetta þó ekki nema væri ein mánaðarlaun á ári í góðgerðamál.  Má svo sem vel vera að margir þeirra geri það þó við vitum ekkert um það.


mbl.is Lét öll laun sín renna til góðgerðarmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Ívar Jón Arnarson

Höfundur

Ívar Jón Arnarson
Ívar Jón Arnarson
Höfundur hefur áhuga á ýmsustu viðfangsefnum.  Bara nefna það, hef örugglega skoðun á því.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 186

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband